Sinfóníuhljómsveit áhugamanna var stofnuð haustið 1990 og hefur starfað óslitið síðan. Í hljómsveitinni leika hljóðfæraleikarar sem flestir hafa atvinnu af öðru. Hún er einnig vettvangur nemenda og tónlistarkennara til að iðka tónlist. Hljómsveitina skipa að jafnaði 40-60 manns, en miklu fleiri hafa leikið með henni í lengri eða skemmri tíma. Starfið er ólaunað. Fjöldi þekktra, íslenskra einleikara og einsöngvara hefur komið fram með hljómsveitinni og hún hefur átt samstarf við marga kóra. Sveitin heldur 5-7 tónleika á ári, en auk þess kemur hljómsveitin fram við ýmis tækifæri. Hljómsveitin hefur gefið út þrjá hljómdiska með leik sínum og einnig tekið þátt í gerð kvikmynda. Aðalstjórnandi og listrænn leiðtogi hin síðari ár er Oliver Kentish.
Starfsárið er frá september til maí. Æft er á þriðjudagskvöldum í Seltjarnarneskirkju frá 19:30 - 22:00. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt máttu endilega hafa samband
Edinburgh Open Orchestra heimsækir Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Aðgangseyrir: Sjá Tix.is
Starf/menntun: Fiðlukennari
Tónlistarnám: Hóf fiðlunám 8 ára í Barnamúsíkskólanum hjá Ruth Hermanns. Síðan tók við nám hjá Birni Ólafssyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þar tók hún lokapróf og kennarapróf. Helga hefur sótt námskeið víða um heim, meðal annars einn vetur hjá Paul Zukovsky í New York.
Með SÁ síðan: 1990
Starf/menntun: Tölvunarfræðingur
Tónlistarnám: Guðrún hóf að læra á óbó í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar 14 ára að aldri og lauk þaðan fullnaðarprófi árið 1992 undir handleiðslu Daða Kolbeinssonar.
Með SÁ síðan: Óslitið síðan 1991
Starf/menntun: tónskáld, aðjúnkt við LHÍ og söngvari
Tónlistarnám: Hildigunnur stundaði nám við tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík með tónsmíðar sem aðalgrein og lauk þaðan prófi vorið 1989. Síðan nam hún tónsmíðar, hjá Professor Günter Friedrichs í Hamborg og Svend Hvidtfelt Nielsen í Kaupmannahöfn. Hildigunnur starfar nú við tónsmíðar, kennslu og söng í Reykjavík ásamt því að sitja í stjórn Íslenskrar tónverkamiðstöðvar.
Með SÁ síðan: 1993
Langi þig að taka þátt eða hafir einhverjar spurningar
Æfingar fara fram í Seltjarnarneskirkju.